Við hugsum væntanlega flest lítið um beinin okkar dagsdaglega og beinheilsa verður oft fyrst eitthvað sem við verðum almennilega meðvituð um þegar eitthvað gerist, við slösum okkur, brjótum bein eða brákum.
Nú þegar vitundarvakning í kringum breytingaskeiðið og skilningur á því er að aukast og færast meira í almenna umræðu, og við gerum okkur betur grein fyrir því hversu fjölbreytt og víðtæk einkenni og áhrif þess geta verið, er einnig mikilvægt að tala um og huga að beinheilsu og beinvernd.
Þegar við nálgumst breytingaskeiðið og estrógenmagn í líkamanum fer minnkandi geta breytingar orðið á því hvernig líkaminn endurnýjar beinvef og það getur haft áhrif á beinheilsu til lengri tíma. Þessi breyting á sér ekki stað á einni nóttu en því fyrr sem við hugum markvisst að beinvernd byggjum við upp góðan grunn, bæði fyrir árin á undan breytingaskeiðinu og á meðan á því stendur, en ekki síst fyrir árin sem á eftir fylgja.
Bein eru lifandi vefur
Beinin okkar eru í stöðugri endurnýjun. Líkaminn brýtur niður beinvef og byggir upp nýjan, í sífellu. Þegar hormónabreytingar hefjast, sérstaklega á árunum í kringum tíðahvörf, getur niðurbrot beina orðið meira en uppbygging þeirra. Þá getur beinþéttni tekið að minnka og konur um og eftir fimmtugt eru því oft í aukinni áhættu fyrir beinþynningu.
Beinbrot sem tengjast beinþynningu geta haft afleiðingar sem ná langt út fyrir brotið sjálft, sérstaklega þegar aldurinn færist yfir. Þau geta valdið langvarandi skerðingu á hreyfigetu og sjálfstæði, og fyrir marga verður daglegt líf krefjandi með aukinni þörf fyrir aðstoð. Í sumum tilvikum geta slíkar afleiðingar einnig haft áhrif á heilsu og lífslíkur til lengri tíma.
Beinheilsa í þremur tímabilum
Beinheilsa er samfella, verkefni sem við hugum að yfir lengri tíma. Fyrir konur getur verið skynsamlegt að huga sérstaklega að uppbyggjandi þáttum beina töluvert áður en við nálgumst tíðahvörf, styrkja grunninn svo að við séum betur settar í gegnum árin sem við nefnum breytingaskeiðið.
Þegar breytingaskeiðið er að baki eru árin sem fylgja sannarlega virkur og mikilvægur hluti lífsins. Þá skiptir máli að viðhalda styrk, jafnvægi og hreyfigetu og njóta alls þess sem lífið hefur upp á að bjóða.
Þess vegna getur það sem við gerum fyrir beinheilsu okkar í dag lagt grunn að meira frelsi og betri lífsgæðum til framtíðar.
Hvernig getum við unnið með líkamanum til lengri tíma?
Vegna þess að minnkuð beinþéttni þróast oft hljóðlega og án þess að við séum endilega meðvituð um stöðu beina okkar geta forvarnir skipt sköpum og því getur verið skynsamlegt að byrja snemma að huga markvisst að beinvernd á heildrænan hátt.
Heildræn nálgun felur í sér að stunda reglulega hreyfingu og styrktarþjálfun, huga að mataræði og næringu sem styður við beinvef og byggja upp venjur sem auðvelt er að flétta inn í daglegt líf.
Í einhverjum tilfellum getur einnig hjálpað að velja fæðubótarefni sem sérstaklega styðja kalkupptöku og beinheilsu. Góð næring og vel valin fæðubót geta þannig skipt máli því beinin, þessi lifandi vefur, þarf meira en eingöngu kalk til endurnýjunar.
huemeno® D3 + K2 – betri saman
huemeno® D3 + K2 er hannað með konur á breytingaskeiði í huga, árin fyrir það og eftir það, og í raun alla þá sem vilja styðja við beinheilsu með markvissum hætti til lengri tíma.
D3-vítamín: stuðningur við kalkupptöku og beinheilsu
D-vítamín hjálpar líkamanum að nýta kalk úr fæðu. Ef magn D-vítamíns er lágt getur kalkupptaka minnkað, jafnvel þó kalkneysla sé í ágætu magni. Þetta skiptir máli fyrir beinin þar sem þau þurfa stöðugt framboð af byggingarefnum til viðhalds og uppbyggingar.
Á norðlægum slóðum, eins og hér á Íslandi, getur verið áskorun stóran hluta árs að byggja upp nægilegan forða D-vítamíns, sér í lagi þegar lítillar sólar nýtur. Þess vegna velja margir að taka inn huemeno® D3 + K2 til að ná sér í D-vítamín, í magni sem telur sem styður meðal annars við eðlilega starfsemi ónæmiskerfis okkar.
Auk þess tengist D-vítamín ferlum sem styðja við beinheilsu, meðal annars með því að stuðla að eðlilegri upptöku fosfórs og kalks og nýtingu þess í líkamanum. huemeno® D3 + K2 inniheldur kólíkalsíferól, vel nýtt form af D-vítamíni.
K2 (MK-7): að styðja eðlilega nýtingu kalks
K-vítamín (K2) stuðlar að eðlilegri blóðstorknun og viðhaldi eðlilegra beina. MK-7 (menakínón-7) er vel nýtt form af K-vítamíni.
Þar sem D3 og K2 eru svokölluð fituleysanleg vítamín getur verið skynsamlegt að taka þau inn með máltíð eða fæðu sem inniheldur einhverja fitu frekar en til dæmis fastandi að morgni, á tóman maga. Fituleysanleg þýðir að vítamínin leysast upp í fitu og líkaminn nýtir fitu úr fæðunni til að taka þau upp.
huemeno®: fá innihaldsefni, markviss nálgun – fyrir alla
huemeno® vörurnar byggja á þeirri hugsjón að styðja við grunnstoðir heilsunnar með fáum en vel völdum innihaldsefnum.
Í stað flókinna blanda leggur huemeno® áherslu á samsetningar þar sem hvert innihaldsefni hefur skýran tilgang og er notað í skömmtum sem styðja við markmið hverrar vöru fyrir sig.
Það er vert að taka fram að þó huemeno® staðsetji sig nálægt konum á breytingaskeiði og það er yfirlýst markmið huemeno® að vekja athygli á þessu mikilvæga tímabili í lífi kvenna, henta vörurnar öllum, konum jafnt sem karlmönnum enda innihalda þær hvorki hormóna né hormónalík efni, svo sem plöntuhormóna (e. phytoestrogens) eða jurtaútdrætti sem líkja eftir áhrifum estrógens eða annarra hormóna.
Þær henta því bæði sem sjálfstæður stuðningur og sem hluti af breiðari nálgun samhliða hormónauppbót eða öðrum úrræðum, allt eftir því sem hver kona kýs.
