huemeno® Me er ætluð konum á árunum í kringum breytingaskeiðið, og eftir það.

Hún inniheldur þrjá SynbÆctive® góðgerlastofna frá SynBalance Srl – ítölsku líftæknifyrirtæki sem nýtir tækni byggða á nákvæmri greiningu örveruflórunnar og sérhæfir sig í þróun góðgerlalausna með skýrri skilgreiningu á virkni.

Markmið SynBalance er að styðja við heilsu með áhrifum á örveruflóruna og leggja þannig grunn að forvörnum gegn langvinnum sjúkdómum og áhrifum öldrunar.

Árið 2021 hlaut SynBalance NutraIngredients Awards verðlaunin “Ingredient of the Year – Weight Management” fyrir innihaldsefni í flokki þyngdarstjórnunar – fyrir þessa tilteknu blöndu gerla sem finna má í huemeno® Me. Rannsóknir hafa bent til þess að blandan geti haft áhrif á örveruflóruna og efnaskiptaheilsu, þar á meðal á þætti eins og mittismál og kviðfitu.

Mataræðið skiptir líka máli – ekki síst próteinið

„Það sem margar konur gera sér ekki grein fyrir,“ segir Þorbjörg, „er hversu miklu máli próteinið skiptir á breytingaskeiði og eftir það. Eftir því sem við eldumst þurfum við að hafa meira fyrir því að viðhalda vöðvamassanum og á breytingaskeiðinu verður þetta enn mikilvægara. Vöðvamassinn heldur efnaskiptunum virkum, og nægt prótein hjálpar okkur að halda honum – það er eitt af lykilatriðunum fyrir orku, jafnvægi og heilsu á þessum árum.“

Þorbjörg mælir með að konur á breytingaskeiði hugi að því að fá nægilegt prótein í hverri máltíð.

„Ég er mjög hrifin af harðfiski – betri próteingjafa og snakk er varla hægt að fá og kjörið að hafa við höndina þegar ég vil fá mér eitthvað gott. En það er líka mikilvægt að hafa góða próteingjafa, og góða gerð af fitu og olíur, í hverri máltíð – egg, skyr, kjúkling, lambakjöt, fisk. Það hjálpar líkamanum að halda í vöðvamassann og heldur matarlystinni stöðugri.  Trefjarík fæða, heilkorn og grænmeti skipta líka máli og við ættum að reyna að forðast unnar matvörur.“  Hún leggur áherslu á að mataræðið sé grunnurinn – en stundum þurfi líkaminn auka stuðning í formi vel valinna bætiefna.

„Ég tek huemeno með mér til Danmerkur“

„Nú er það þannig,“ segir Þorbjörg og brosir, „að þegar ég fer heim til Danmerkur, þá tek ég ekki bara með mér harðfisk – heldur líka huemeno® Me, huemeno® D3 &  K2 og huemeno® Magnesium Bisglycinate.  Ég finn svo vel hvað huemeno® styður vel við mig.  Harðfiskinn þekkjum við auðvitað öll, en hann er þó alls ekki eins vinsæll eða þekktur í Danmörku og á Íslandi.

huemeno® Me – fjölvirkur stuðningur

huemeno® Me er ætlað til að styðja við efnaskiptaheilsu, þyngdarstjórnun, meltingu og jafnvægi í flóru legganga – í gegnum áhrif á þarmaflóruna.

„Ég finn svo vel hvað huemeno® Me gerir mér gott“ segir Þorbjörg. „Meltingin verður betri og léttari, orkan jafnari og mér líður allri betur”.

Heilbrigð þarmaflóra hefur áhrif víðar en í meltingarveginum þar sem huemeno® Me getur hjálpað til  við draga úr uppþembu og koma reglu á hægðirnar.   Þarmaflóra og flóra legganga eru í nánu sambandi – þegar jafnvægi ríkir í þörmum getur það hjálpað til við að styrkja náttúrulegt varnarkerfi legganga, meðal annars með áhrifum á sýrustig og draga úr endurteknum sýkingum.

„Þarmaflóran og leggöngin tala saman,“ útskýrir Þorbjörg. „Ef flóran í meltingarveginum er í ójafnvægi, þá speglast það oft í viðkvæmari flóru í leggöngum. Það er einmitt þess vegna sem það skiptir skiptir svo miklu máli að velja góðgerla af góðum gæðum og sem hafa skilgreinda virkni. Mataræði skiptir einnig máli þarna, og við getum til að mynda haft áhrif til góðs með því að stilla sykurneyslu í hóf.“

Tveir af þremur gerlastofnunum í SynbÆctive® hafa í rannsóknum sýnt að þeir geta komist alla leið til kynfærasvæðisins og þannig stutt við heilbrigða flóru legganga og hafa þannig áhrif til að takast á við endurteknar sýkingar til að mynda.

Áhrif góðgerla ráðast ekki aðeins af tegund, heldur af nákvæmum stofni, magni og samsetningu.

Í huemeno® Me eru þrír SynbÆctive® stofnar í þeim skömmtum sem rannsóknir styðja, og hafa áhrif á:

  • Meltingu – vinna gegn hægðatregðu, uppþembu og vindgangi
  • Efnaskiptaheilsu, mittismál og orkunýtingu
  • Jafnvægi flóru í leggöngum og vörn gegn endurteknum sýkingum

Auk þess inniheldur varan inúlín og FOS trefjar, svokallaða forgerla, sem næra góðgerlana og styðja virkni þeirra í líkamanum.

B-vítamínin sem styðja orkuna og hormónajafnvægið

Í huemeno® Me eru einnig tvö mikilvæg B-vítamín:

  • B6-vítamín, sem styður við orkuvinnslu, starfsemi taugakerfis og hormónajafnvægi
  • B1-vítamín (þíamín), sem hjálpar líkamanum að umbreyta fæðu í orku og styður starfsemi hjarta og taugakerfis

huemeno® – fá innihaldsefni, fjölþætt virkni

huemeno® vörurnar eru byggðar á þeirri hugsjón að styðja við grunnstoðir heilsunnar með fáum en vel völdum innihaldsefnum – efnum sem hafa verið valin sérstaklega vegna fjölþættrar virkni þeirra og tengsla við lykilþætti líkamlegrar og andlegrar heilsu á breytingaskeiðinu og eftir það.