Hvers vegna ættir þú að velja huemeno®  Magnesium Bisglycinate?

Það eru ekki öll form af magnesíum eins – og það getur skipt verulegu máli fyrir virkni og frásog hvaða tegund við veljum. Magnesíum bisglycinate frá huemeno® er á formi sem frásogast vel og nýtist því líkamanum sérstaklega vel, er milt og þolist vel, jafnvel hjá þeim sem eru viðkvæmir í maga og þola mögulega illa önnur form af magnesíum.

Magnesíum tekur þátt í fjölmörgum ferlum líkamans sem snerta orku, vöðvastarfsemi, bein- og tannheilsu og andlega líðan. Það getur dregið úr þreytu og orkuleysi, stutt við eðlilega orkuvinnslu og hjálpað líkamanum að viðhalda vökvajafnvægi.

Magnesíum styður einnig við eðlilega starfsemi taugakerfis og vöðva, sem getur skipt máli fyrir líkamlega slökun og hvíld.

 

huemeno® Magnesium Bisglycinate

– hluti af nærandi kvöldrútínu

Margar konur kjósa að taka huemeno® Magnesium Bisglycinate að kvöldi til, sem hluta af rólegri kvöldrútínu. Þar sem magnesíum stuðlar að eðlilegri vöðvastarfsemi og starfsemi taugakerfisins getur það verið einföld leið til að styðja við líkamlega slökun og undirbúning fyrir svefn.

huemeno® Magnesium Bisglycinate er fæðubótarefni sem má taka með öðrum huemeno® vörum  eins og huemeno® me og huemento® D3+K2. huemeno® Magnesium Bisglycinateer tilvalið fyrir konur á og í kringum breytingaskeiðið – og fyrir árin sem fylgja.

huemeno® vörurnar eru góð leið til að styðja við grunnstoðir heilsunnar, þær eru með fáum innihaldsefnum, en með fjölþætta virkni.

Magnesium bisglycinate frá huemeno®

huemeno® er stolt af því að vera hluti af alþjóðlegri hreyfingu sem hefur það að markmiði að gera breytingaskeiðið sýnilegt, skiljanlegt og þýðingarmikið. Þess vegna eru vörurnar okkar vottaðar með MTick® – fyrsta alþjóðlega tákninu sem sýnir að vara teljist „menopause-friendly“, eða hentug fyrir konur á breytingaskeiði. 

Bakvið MTick® stendur GenM®, magnað félag sem hefur gjörbreytt samtalinu um breytingaskeiðið í Bretlandi – og nú víðar.

Notkunarleiðbeiningar og innihald

Ráðlagður neysluskammtur:
2 hylki á dag.

Innihald í tveimur hylkjum:
220 mg hreint magnesíum úr 1573 mg Magnesium Bisglycinate – sem samsvarar 59% af næringarviðmiðunargildi (NRV).

Innihaldsefni:
Magnesium bisglycinate, magnesium stearate. Hylki: HPMC hylki (plöntutrefjar).
Inniheldur ekki soja, glúten, laktósa eða erfðabreytt efni.  Hentar grænmetisætum og grænkerum.

Geymsluleiðbeiningar:
Geymist á köldum, þurrum stað fjarri sólarljósi. Geymist þar sem börn ná ekki til og sjá ekki til.

Varnaðarorð:
Neytið ekki meira en sem nemur ráðlögðum neysluskammti. Ekki ætlað að koma í staðinn fyrir fjölbreytta og fæðu og heilbrigðan lífsstíl. Leitið ráða hjá heilbrigðisstarfsfólki ef þú ert barnshafandi, með fæðuóþol, með undirliggjandi sjúkdóma eða tekur lyf.

Framleitt og pakkað í GMP vottaðri verksmiðju á Íslandi fyrir:
huemeno ehf.

Algengar spurningar um huemeno® Magnesium Bisglycinate

Hvað er Magnesium Bisglycinate og af hverju ætti ég að velja það?

Magnesium Bisglycinate er magnesíum bundið við amínósýruna glýsín. Þessi samsetning gerir það að verkum að líkaminn nýtir steinefnið mun betur en önnur form. Ólíkt t.d. magnesíum oxíði eða sítrati, fer þetta form beint í gegnum þarmaveggina án þess að valda meltingartruflunum eða hægðalosandi áhrifum. Það er því tilvalið fyrir þá sem eru með viðkvæman maga.

Af hverju ætti ég að velja huemeno® Magnesium Bisglycinate frekar en aðrar tegundir?

Gæði magnesíums ráðast fyrst og fremst af frásogshæfni þess. huemeno® Magnesium Bisglycinate notar eingöngu hágæða hráefni sem hannað er til að hámarka upptöku og lágmarka aukaverkanir. Með því að velja huemeno® tryggir þú að líkaminn fái virka efnið þangað sem þess er þörf – í vöðvana, taugakerfið og beinin – án þess að valda óþægindum í meltingu.

Hvernig hjálpar huemeno® Magnesium Bisglycinate á breytingaskeiðinu?

Á breytingaskeiði verða miklar hormónabreytingar sem geta haft áhrif á steinefnabúskapinn. huemeno® Magnesium Bisglyscinate styður við konur á þessu skeiði með nokkrum lykilleiðum:

  • Betri hvíld: Styður við eðlilega starfsemi taugakerfisins, sem hjálpar líkamanum að „slökkva á sér“ og finna ró.
  • Vöðvaslökun: Dregur úr krömpum og eirðarleysi í fótum, sem oft truflar svefn kvenna á breytingaskeiði.
  • Beinheilsa: Magnesíum er nauðsynlegt fyrir upptöku kalks og viðhald sterkra beina, sem er afar mikilvægt á þessum tíma.
  • Minni þreyta: Stuðlar að eðlilegri orkuvinnslu og vinnur gegn því orkuleysi sem margar konur finna fyrir.
Hjálpar huemeno® Magnesium Bisglycinate við svefntruflanir og nætursvita?

Já, margar konur upplifa bættan svefn með inntöku á huemeno® Magnesium Bisglycinate. Glýsínið í samsetningunni hefur róandi áhrif á heilann og getur hjálpað til við að lækka kjarnhita líkamans lítillega, sem styður við dýpri svefn. Þar sem líkaminn tapar steinefnum við svita, getur regluleg inntaka einnig hjálpað til við að viðhalda vökvajafnvægi ef nætursviti er til staðar.

Hvenær dagsins er best að taka inn magnesíumið?

Til að hámarka ávinning fyrir hvíld og endurheimt mælum við með því að taka huemeno® Magnesium Bisglycinate um 30-60 mínútum fyrir svefn. Það undirbýr líkamann fyrir næturhvíldina og

Hversu fljótt fer ég að finna mun?

Hvað varðar slökun og svefn finna margir mun strax eftir fyrstu skammta. Þegar kemur að dýpri áhrifum á vöðvastarfsemi, beinheilsu og almenna orku, getur tekið 2-4 vikur af reglulegri notkun að fylla fyllilega á birgðir líkamans og ná hámarksvirkni.