Verðlaunaðir góðgerlar í flokki þyngdarstjórnunar

Huemeno® Me er aðalvaran okkar og hún hefur sannarlega fengið frábærar móttökur. Hún inniheldur þrjá SynbÆctive® góðgerlastofna frá SynBalance Srl – ítölsku líftæknifyrirtæki sem nýtir tækni byggða á nákvæmri greiningu örveruflórunnar og sérhæfir sig í þróun góðgerlalausna með skýrri skilgreiningu á virkni.

Markmið SynBalance er að styðja við heilsu með áhrifum á örveruflóruna og leggja þannig grunn að forvörnum gegn langvinnum sjúkdómum og áhrifum öldrunar.

Verðlaunaðir góðgerlar fyrir þyngdarstjórnun

Árið 2021 hlaut SynBalance NutraIngredients Awards verðlaunin „Ingredient of the Year – Weight Management“ fyrir innihaldsefni í flokki þyngdarstjórnunar, fyrir þessa tilteknu blöndu gerla sem finna má í huemeno® Me. Rannsóknir hafa bent til þess að blandan geti haft áhrif á örveruflóruna og efnaskiptaheilsu, þar á meðal á þætti eins og mittismál og söfnun kviðfitu.

Eitt af því sem margar konur taka eftir á árunum í kringum breytingaskeiðið er aukin tilhneiging til að safna fitu á sig á kviðsvæði.  Kviðfitu ætti því ekki aðeins að skoða sem útlitsatriði og mittismál – hún getur gefið til kynna að ákveðnir þættir tengdir efnaskiptum og heilsu okkar gætu þurft sérstaka athygli.

„Kviðfita er ekki bara spurning um þyngd eða útlit – hún getur verið merki um að efnaskiptin séu að breytast og að líkaminn þurfi meiri stuðning til að viðhalda jafnvægi,“ segir Þorbjörg Hafsteinsdóttir, hjúkrunarfræðingur, næringarþerapisti og lífsstílsþjálfi með sérþekkingu á breytingaskeiðinu.

„Þarna gegnir þarmaflóran líka hlutverki – hún hefur meðal annars áhrif á meltingu, efnaskiptaheilsu, andlega heilsu og almenna vellíðan. Þegar jafnvægið raskast getur það haft áhrif á næringarupptöku, orkuvinnslu og jafnvel bólgusvörun líkamans.“

Við getum stutt við þarmaflóruna með því að huga meðal …
Við getum stutt við þarmaflóruna með því að huga meðal annars að því hvernig fæðu við neytum og með því að taka inn góðgerla af góðum gæðum og í magni sem telur.

Hugtakið „metabolic health“ er að öllum líkindum töluvert algengara í daglegu tali hjá enskumælandi þjóðum, en íslenska þýðingin, efnaskiptaheilsa, hefur ekki sömu festu í almennu máli – þó hún lýsi vel því sem átt er við. Skilningur okkar er því enn að mótast, og mikilvægt er að vekja meiri athygli á hugtakinu og því hvernig það tengist líðan okkar og heilsu – ekki síst því hvernig efnaskiptaheilsa getur haft áhrif á almenna heilsu og vellíðan til framtíðar.

Efnaskiptaheilsa fjallar meðal annars um hvernig líkaminn nýtir orku – hvernig hann vinnur næringu úr fæðu, geymir fitu, heldur jafnvægi á blóðsykri og bregst við streitu og hefur einnig áhrif á hjarta og æðakerfi. Þetta eru grunnferlar líkamans sem yfirleitt fara fram í kyrrþey, án þess að við finnum endilega mikið fyrir þeim.

Þegar hormónastarfsemi breytist, sérstaklega þegar estrógen minnkar, getur það haft áhrif á efnaskiptin. Hægst getur á orkuvinnslu, blóðsykur orðið óstöðugri og líkaminn breytir því hvernig og hvar hann geymir fitu.

Þarmaflóran – ósýnilegur áhrifavaldur í lífi okkar

Á breytingaskeiði eiga sér stað fjölmargar breytingar í líkamanum – sumar greinilegar, aðrar minna sýnilegar. Einn af þáttunum sem oft fær of litla athygli er einmitt þarmaflóran og hvernig hún skiptir einnig máli á þessu tímabili.

Þarmaflóran, sem einnig er kölluð örveruflóra, er eitt flóknasta lífkerfi líkamans og gegnir lykilhlutverki í heilsu okkar. Hún samanstendur af þúsundum tegunda örvera sem lifa í meltingarveginum og vinna saman í flóknu samspili. Þessar örverur, sem telja milljarða, geta haft áhrif á meltingu, upptöku næringarefna, efnaskipti, ónæmiskerfið og jafnvel taugakerfið og andlega heilsu og skap. Þessi „ósýnilegi heimur“ hefur vakið mikla athygli vísindamanna á síðustu árum vegna víðtækra áhrifa hans á allt líkamsstarfið. Þegar flóran er í jafnvægi styður hún líkamann á margvíslegan hátt. Þegar jafnvægi hennar raskast geta áhrifin orðið margþætt og borið með sér óþægindi, oft alls ótengd meltingarkerfinu sjálfu.

Huemeno® x SynbÆctive®

Það er mikilvægt að hafa í huga að áhrif góðgerla ráðast ekki aðeins af tegund bakteríu eða gerli – heldur af því hvaða stofn er nákvæmlega notaður, í hvaða magni og við hvaða aðstæður.

Í huemeno® Me eru notaðir þrír stofnar SynbÆctive® góðgerla sem hafa verið rannsakaðir sérstaklega fyrir sértæka eiginleika til stuðnings við:

• Meltingu og getu til að vinna gegn hægðatregðu, uppþembu og vindgangi
• Efnaskiptaheilsu, kviðfitu og orkuvinnslu
• Jafnvægi flóru í leggöngum og getu til að sporna við endurteknum sýkingum

Í hverju hylki af huemeno® Me er magn SynbÆctive® gerlanna í þeim skömmtum sem rannsóknir styðja og sýna jafnframt að þeir nái á þá staði sem þeim er ætlað að hafa áhrif.

Að auki inniheldur huemeno® Me inúlín og FOS trefjar, svokallaða forgerla, sem næra góðgerlana og styðja virkni þeirra í líkamanum. Í vörunni eru einnig tvö B-vítamín, B6-vítamín, sem styður við orkuvinnslu, starfsemi taugakerfis og hormónajafnvægi og B1-vítamín (þíamín), sem hjálpar til við umbreytingu fæðu í orku og styður við starfsemi hjarta og taugakerfis.

Heildræn nálgun

Þó engar tvær konur upplifi breytingaskeiðið á sama hátt, eru ákveðnir þættir sem eiga við okkur allar – atriði sem vert er að huga að til að styðja heilsu okkar, ekki aðeins á meðan breytingarnar eiga sér stað heldur einnig áður, og fyrir árin sem á eftir koma.

Þá er sérstaklega mikilvægt að huga að beinheilsu, þar sem náttúruleg vernd estrógens minnkar og bein geta orðið viðkvæmari. Með huemeno® Vitamin D3 & K2 má styðja við upptöku og nýtingu kalks og þannig styðja við beinheilsu.

Svefn og hvíld halda áfram að skipta sköpum – bæði fyrir orku, jafnvægi og endurheimt. Góðar svefnvenjur og stuðningur frá huemeno® Magnesium Bisglycinate að kvöldi geta hjálpað okkur að ná slökun, stuðlað að eðlilegum svefni og stutt við orkujafnvægi dag frá degi.

Huemeno® – fá innihaldsefni, fjölþætt virkni

Huemeno® vörurnar eru byggðar á þeirri hugsjón að styðja við grunnstoðir heilsunnar með fáum en vel völdum innihaldsefnum – efnum sem hafa verið valin sérstaklega vegna fjölþættrar virkni þeirra og tengsla við lykilþætti líkamlegrar og andlegrar heilsu á breytingaskeiðinu og eftir það.

Þær innihalda hvorki hormóna né hormónalík efni, svo sem plöntuhormóna (e. phytoestrogens) eða jurtaútdrætti sem líkja eftir áhrifum estrógens eða annarra hormóna og henta því í raun öllum, bæði sem sjálfstæður stuðningur og sem hluti af breiðari nálgun samhliða hormónauppbót eða öðrum úrræðum, allt eftir því sem hver kona kýs.

Í stað þess að treysta á flóknar blöndur með fjölda ólíkra efna leggur huemeno® áherslu á samsetningar þar sem hvert innihaldsefni hefur skýran tilgang og er notað í skömmtum sem styðja við markmið vörunnar.